• Íslenska landnámshænan
  • Íslenska landnámshænan

Fréttir

Blaðið komið til félaganna

Blaðið Landnámshænan 2010 er komin til skuldlausra félaga og fer í almenna dreifingu eftir næstu helgi. Í blaðinu er mikið af fróðlegu og skemmtilegu efni og fjöldi mynda af hænsnum.
 

skráningar hafnar

Nú þegar hafa nokkrir félagar skráð sig á sýningu félagsins í Árbæjarsafni sunnudaginn 27 júní næstkomandi.Verið með! skráning hjá Jóhönnu í síma 566 7326 og á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 

Blaðið í vinnslu

Landnámshænan 2010 er nú í vinnslu. Félagar hafa brugðist vel við beiðni um myndir í blaðið og við þökkum kærlega fyrir góð viðbrögð. - það mun sjást á blaðinu að samhjálp skilar góðum árangri

 

Árbær 27.júni

Aðalsýning félagsins á þessu ári verður haldin í Árbæjarsafni sunnudaginn 27.júní.

Undirbúningur er þegar hafinn og ágætt fyrir hugsanlega sýnendur eða þátttakendur í sýningunni að láta vita af sér hjá fomanni félagsins í síma 56 7326 eða í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

   

Sýningar ákveðnar

Aðalsýning ERL verður að þessu sinni haldin í Árbæjarsafni í Reykjavík. Sýningin verður í júlí en endanleg dagsetning er ekki staðfest. Þá verður stór sýning á Akureyri í tengslum við Hrafnagilshátíð. Kynnið ykkur sýningar félagsins og takið endilega þátt, það er afar skemmtilegt og gefandi.
 

Kveðja vegna brunans á Tjörn


Eigendur Landnámshænsna og aðrir velunnarar.

Lesa meira: Kveðja vegna brunans á Tjörn

   

200 hænur brunnu inni

Mikið tjón varð þegar útihús á Tjörn á Vatnsnesi brunnu í nótt. Júlíus Baldursson á Tjörn er annar af stærstu ræktendum landnámhænunnar og brunnu um 200 hænur inni. Einnig brunnu útungunarvélar með mörg hundruð óklöktum eggjum. ERL vottar Júlíusi djúpa samúð og vonar innilega að krafta hans muni njóta fljótt á ný í verndun stofnsins.
 

rannsókn undirbúin

Þessa dagana er verið að leggja drög að nýrri rannsókn á Landnámshænunni. Það er Matís sem framkvæmir rannsóknina en Jón Hallsteinn Hallsson á Hvanneyri stjórnar aðgerðum  hvað okkur hænsnaeigendur varðar. Þegar nær dregur þurfum við á aðstoð ykkar hænsnaeigenda að halda við að afla sýna.
   

blaðið á netinu

 

Ársritið okkar Landnámshænan er nú aðgengileg á síðunni. Síðustu þrjú blöð er að finna í valmyndinni "blaðið okkar" hér að ofan - lengst til hægri.

Lesa meira: blaðið á netinu

 

blaðið 2010- efni

Undirbúningur að ársriti ERL er hafinn. Við þiggjum allar hugmyndir með þökkum. Tillögur að efni má senda á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Takið þátt í að móta umræðuna!
   

Síða 1 af 2

 
Rammi
grasrótin
Vefhönnun: Hugsa sér !
Eigenda- og ræktendafélag Landnámshænsna | Hafa samband
Íslenska landnámshænan