• Íslenska landnámshænan
  • Íslenska landnámshænan

Heilbrigði

Hnýslasótt


Sem betur fer eru sjúkdómar óalgengir í íslenskum Landnámshænum, þær eru harðar af sér og ónæmiskerfið sterkt.
Þó kemur fyrir að fuglar sýkjast og er þá oft um að kenna hnýslasótt. Algengast er að slíkt komi upp þar sem hænur eru hafðar í húsum þar sem önnur dýr, s.s. kindur hafa verið áður. Hnýslasótt í hænum lýsir sér gjarna á þennan hátt:
Blóð sést í hægðum fuglsins
Fuglinn fær niðurgang og er með blóð í hægðunum.
Fuglinn verður valtur á fótum, riðar jafnvel og styður vængjum til stuðnings.
Fuglinn verður máttlaus og deyr síðan.
Hægt er að fá lyf við hnýslasótt hjá dýralæknum en það er gefið út í vatnið. Áríðandi er að brugðist sé fljótt við ef fugl veikist, því sjaldan er ein báran stök. Hægt er að bjarga þeim fuglum sem ekki eru langt gengnir í sjúkdómnum.

JH
 
 
Rammi
grasrótin
Vefhönnun: Hugsa sér !
Eigenda- og ræktendafélag Landnámshænsna | Hafa samband
Íslenska landnámshænan