

Góð nýting, góð egg, góð heilsa og góð samviska
Hænurnar eru ekki dýrar á fóðrum og gefa af sér dásamleg nýorpin egg til heimilisins, full af dýrmætum næringarefnum. Þeir sem halda hænur geta haft góða samvisku gagnvart náttúrunni. Nýting á heimilismatnum verður mjög góð ef hænum eru gefnir afgangar, hænsaskíturinn er einhver besti áburður sem hægt er að fá og hænsnahald er því hin fullkomna endurnýting.
Sumar lausagönguhænur láta sig hverfa úr hænsnakofanum og vilja ekki vera á hreiðri í kofanum af ótta við truflun. Þær eru stundum taldar af en koma svo vappandi með ungana mánuði seinna.
Flest dýr eiga það sameiginlegt að vilja ekki láta fanga sig og halda sér föstum. Það eru eðlileg viðbrögð dýrs sem ekki hefur kynnst manninum og lært að treysta honum eða vingast við hann.
Besta leiðin til að geta handfjatlað fullorðin hænsn er að venja unga strax við nærveru mannsins og mannshöndina. Hænur og hanar sem hafa verið handfjötluð frá því þau komu úr eggi forðast ekki manninn og hægt er að halda á þeim og skoða þegar þarf.
Við skulum því byrja strax á að handfjatla hænsnin okkar.
Laugagöngufuglar eru svo heppnir að geta gætt sér á ýmsum kræsingum sem búrfuglar geta ekki.
Feitar og pattaralegar flugur, safaríkur arfi og jafnvel nýsprottin sumarblóm fara vel í maga og gefa hrausta fugla og bragðgóð egg.
Flestir eigendur landnámshænsna eru mjög vistvænir og nýta alla afganga sem falla til í hænurnar og í allflestum tilfellum er það til gagnkvæmrar gleði. Hænurnar hafa undantekningarlítið gott af matarafgöngum heimilisins og þær hafa mjög gaman af að róta í þeim og velja sér bestu bitana, jafnvel þótt það kosti stundum hnippingar, garg og kapphlaup.
En það má þó ekki gefa fuglunum hvað sem er.
Hreinlætið skiptir miklu máli í hænsnahaldinu.
Sé hreinlætis gætt verða hænurnar fallegri í fiðri og þrífast betur, öll umhirða verður skemmtilegri og hætta á sjúdómum minnkar til muna. Það er einfaldast að koma sér upp hreinlætissiðum sem gera umhirðuna auðvelda, suma hluti þarf að framkvæma daglega en öðrum nægir að sinna sjaldnar. Hér er góður listi yfir reglubundin verk.