• Íslenska landnámshænan
  • Íslenska landnámshænan

Egg og ungar

Vandasöm útungun

thumb_ungar_og_tungunÚtungun er ekki tómt grín, í henni felst talsverð vinna jafnvel þótt ræktandinn sé með risastóra vél eða rándýra. Á bak við góða útungun felst talverð umhirða á undaneldisfuglunum sem þurfa að vera hraustir og frjósamir og mikil fyrirhöfn í vali á eggjum og gát á útunguninni. Það er líka óvíst með árangurinn, -  margt getur misfarist á þeim vikum frá því að eggi er verpt og þar til heilbrigður ungi kemst til nýs eigenda.
Allur sá ferill byggir á því að allt sé í lagi, fullorðnu hænsnin, eggin og tækjabúnaðurinn og að ýmsu þarf að hyggja varðandi eggin sjálf meðan þau eru í vélinni.

Lesa meira: Vandasöm útungun

 

Ungað út i vél

Góð egg = gott klak
Ýmsar ástæður geta verið fyrir því að klakið misheppnast, en þessar eru þó helstar:

Lesa meira: Ungað út i vél

 

Ungarnir koma heim


thumb_utungun2Unga sem koma úr útungunarvél er best að taka um leið og þeir klekjast út, þeas 21 degi eftir að eggin eru sett í hana.
Til þess að vel takist til þarf að undirbúa komu þeirra vel.

1.    Ungastían þarf að vera alveg hrein. Ef fuglar eða önnur dýr hafa verið í stíunni þarf að þvo ungastíuna með sótthreinsiefni hálfum mánuði áður en ungarnir koma og láta hana standa auða þangað til. Best er að þvo svæðið fyrst með sápuvatni og síðan sótthreinsa því sótthreinsunarefni gera ekki gagn þar sem óhreinindi eru fyrir.

Lesa meira: Ungarnir koma heim

   

Kyngreining

Strákur eða stelpa?thumb_ungar1

Kyngreining dagsgamalla unga eru vísindi sem þarf bæði tækjabúnað og þekkingu til að framkvæma.
Það er síður en svo einfalt að kyngreina unga af útlitinu einu saman, en þeir sem hafa langa reynslu af að skoða nýklakta unga og fylgjast með þeim þroskast sjá stundum fljótlega hvors kyns unginn er þótt oft sé erfitt að taka ábyrgð á slíkum kyngreiningum. Við sölu á kyngreindum ungum er því oft sleginn sá varnagli að reynist kyngreiningin á einhverjum unganna röng eigi kaupandinn rétt á öðrum unga í staðinn um leið og tækifæri gefst, eða að unginn er tekinn til baka og endurgreiddur af seljandanum.

Lesa meira: Kyngreining

 

Seljum eggin okkar

thumb_egg_og_tlip
Eggin úr hænum sem fá að ganga frjálsar úti og tína upp í sig gróður, skordýr og fleira góðgæti eru sannarlega miklu betri en úr hænum sem eingöngu nærast á tilbúnu fóðri.  Þau eru einnig miklu hollari. Egg frjálsra landnámshænsna hafa fengið orð fyrir að vera einstaklega bragðmikil og góð.
Skilyrðin fyrir þátttöku í sölukeðju ERL eru þessi:

Lesa meira: Seljum eggin okkar

   

Fleiri greinar...

 
Rammi
grasrótin
Vefhönnun: Hugsa sér !
Eigenda- og ræktendafélag Landnámshænsna | Hafa samband
Íslenska landnámshænan