• Íslenska landnámshænan
  • Íslenska landnámshænan

Félagið og sagan

Sýningin á Hrafnagili

Sýningin á Hrafnagili um helgina heppnaðist stórkostlega vel að vanda og vill félagið þakka sérstaklega Inga Vigni Gunnlaugssyni sýningarstjóra og hans fólki frábæra frammistöðu. Þúsundir manna heimsóttu tjald ERL og greiddu atkvæði um fallegustu fuglana á sýningunni. Úrslitin urðu þessi:

Fallegasti hani sýningar var kjörinn Blandon í eigu Einars Gíslasonar á Brúnum, en fallegasta hænan var kjörin Rósa í eigu Samstöðu á Ólafsfirði (Magnús Ingason).

Stjórn ERL vill þakka sýnendum og gestum fyrir komuna með von um endurfundi á næsta ári.

 

mikilvæg rannsókn


Sýnataka – leiðbeiningar


Vegna DNA rannsóknar sem gerð verður á erfðaefni íslensku landnámhænunnar í haust vill félagið biðja félaga sína að taka þátt í sýnatöku, en það felst í að safna 4-5 fjöðrum undan væng hvers fugls.

Auðvelt er að taka sýnin, það veldur fuglunum hvorki sársauka né öðrum skaða og tekur stutta stund. Sýnin eru mjög mikilvæg gögn í rannsókn á tegundinni og við biðjum alla þá sem eiga ARFHREINAR LANDNÁMSHÆNUR að taka þátt í rannsókninni.

Leiðbeiningar um sýnatöku:

  1. Best er að tveir séu við sýnatökuna, annar til að halda á hænunni hinn til að taka sýnið. Einn vanur hænsnaeigandi getur þó vel tekið sýni hjálparlaust.
  2. Haldið fuglinum upp að ykkur og lyftið vængnum sem snýr frá líkama ykkar.
  3. Takið tveim fingrum um fjöður undir vængnum og kippið henni snöggt úr. Við það kemur fjöðurstafurinn með en þar eru erfðaefnin aðgengileg. (Ath. þetta veldur hænunni minni sársauka en þegar hári er kippt úr manni).
  4. Takið 4-5 fjaðrir með þessum hætti úr hænunni, annað hvort undan sama vængnum eða 2-3 undan hvorum væng.
  5. Setjið fjaðrirnar úr hænunni í lítinn plastpoka.

Merking og geymsla sýna:

  1. Gætið þess að í hverjum poka séu aðeins fjaðrir úr einni og sömu hænunni.
  2. Merkið pokann með a) nafni eða númeri hænunnar b) nafni og heimilisfangi eigenda c) hvaðan hænan kemur ef hún er ekki úr ræktun eiganda. Miðinn má vera laus miði ofan í pokanum eða límmiði utan á honum.
  3. Lokið pokanum vandlega t.d. m hnút
  4. Setjið í frysti eða kæli þangað til hægt er að koma sýnunum til skila.

Aðstoð og skil:

  1. Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband við eftirtalda: Jóhönnu í síma 566 7326, Valgerði í síma 486 5530, Kolbrúnu í síma 486 3304 og Júlíus í síma 451 2271.
  2. Látið vita af sýnum hjá sömu aðilum og í framhaldi verður sýnunum safnað í samráði.

Með von um góðar undirtektir landnámshænunni til heilla....

   

vel sótt sýning í Árbæjarsafni

Sýning félagsins í Árbæjarsafni tókst vel. Gífurlegur fjöldi sótti sýninguna í blíðskaparveðri og mátti heita að sýningartjaldið væri fullt allan daginn. Níu hanar voru sýndir, en alls voru sýndir 57 fuglar á ýmsum aldri. Sex nýir félagar bættust í hópinn á sýningunni og bjóðum við þá velkomna í hópinn

Gestir sýningarinnar kusu fallegasta hanann og fallegustu hænuna og verðlaunin að þessu sinni fengu Þorgils Kári Kolsholti III fyrir Stála og Kolbrún Júlíusdóttir fyrir hænuna Öskubusku

   

muna félagsgjöldin

BLAÐIÐ ER Í PRENTUN

og verður sent til skuldlausra félaga fyrir helgi.

Munið að greiða félagsgjöldin, þótt þau séu lág eru þau undirstaða starfsemi félagsins og verndunarstarfs landnámshænunnar.

Árgjaldið er 2.500 krónur og greiðist inn á reikning 0325-13-100359, kt.  540806 0470

 

Munið síðan sýninguna okkar í Árbæjarsafni sunnudaginn 27. júní!

   

Ágrip af sögu ERL

Stofnfundur Eigenda- og ræktendafélags landnámshænsna var haldinn í kaffistofu Bændasamtakanna laugardaginn 1. nóvember 2003.

Á þeim árum sem félagið hefur starfað hefur náðst ótrúlegur árangur. Landnámshænan er nú þekkt innanlands sem -utan og áhugi á ræktun hennar hefur aldrei verið meiri.

Sýningar félagsins og blaðið Landnámshænan njóta talsverðra vinsælda meðal áhugafólks um fugla og félagar ERL eru nú komnir vel á fjórða hundrað. Jóhanna Harðardóttir fyrsti og núverandi formaður félagsins átti hugmyndina að stofnun ERL og leitaði aðstoðar Ólafs Dýrmundssonar hjá Bændasamtökunum við að stofna félag eigenda- og ræktenda  landnámshænsna.

Lesa meira: Ágrip af sögu ERL

   

Síða 1 af 2

 
Rammi
grasrótin
Vefhönnun: Hugsa sér !
Eigenda- og ræktendafélag Landnámshænsna | Hafa samband
Íslenska landnámshænan