• Íslenska landnámshænan
  • Íslenska landnámshænan

Eigenda- og ræktendafélag Landnámshænsna

thumb_merkiERLEigenda- og ræktendafélag landnámshænsna var stofnað í nóvember 2003 og var Jóhanna Harðardóttir aðalhvatamaður þess.

Markmið félagsins eru halda landnámshænsnastofninum hreinum, heilbrigðum og litfögrum. Einnig að stuðla að fræðslu fyrir eigendur og ræktendur landnámshænunnar og að afla henni vinsælda meðal landsmanna.

Félagið gefur út myndarlegt ársrit, heldur fjölda sýninga, dreifir upplýsingum og fræðslu til félaganna, býður upp á námskeið um aðbúnað og ræktun landnámshænsna og heldur úti þessari vefsíðu þar sem félagar geta skipst á skoðunum og aflað sér þekkingar.

 

Á þeim árum sem félagið hefur starfað hefur náðst ótrúlegur árangur. Landnámshænan er nú þekkt innanlands sem -utan og áhugi á ræktun hennar hefur aldrei verið meiri.

Sýningar félagsins og blaðið Landnámshænan njóta talsverðra vinsælda meðal áhugafólks um fugla og félagar ERL eru nú komnir vel á fjórða hundrað.


Síðan félagið var stofnað hafa margir lagt hönd á plóginn og stjórn og varastjórn verið vakin og sofin í að vinna landnámshænunni vel. Félagarnir hafa verið duglegir að sýna fugla og hafa samband, en á því veltur einmitt hvernig ræktunarstarfið tekst til.

Blaðið

Strax fyrsta árið var ákveðið að gefa út blað um landnámshænuna til að vekja áhuga almennings og styðja við ræktendur hennar. Jóhanna Harðardóttir formaður félagsins hefur átt heiðurinn af ritun og útgáfu blaðsins með dyggri aðstoð Valgerðar Auðunsdóttur sem séð hefur um söfnun auglýsinga, Júlíusar Baldurssonar sem skrifað hefur ásamt Jóhönnu í blaðið og Ragnars Sigurjónssonar sem átt hefur margar myndir í blaðinu. Öll hafa þau unnið launalaust að gerð blaðsins sem og öðru varðani félagsstarfið. Blaðið Landnámshænan hefur fengið feikilega góðar viðtökur meðal áhugafólks um hænur og í kjölfar útkomu þess hvert ár bætist fjöldi félaga í ERL.

Sýningar og búr

Eitt af fyrstu verkefnum stjórnar var að ráðast í kaup á sýningarbúrum frá Bretlandi og efna til vandaðra sýninga á landnámshænum. Meðal sýningarstaða á undanförnum árum eru Reykjavík, Akureyri, Ólafsvík, Hella og Sauðárkrókur auk fleiri staða þar sem farið hafa fram minni sýningar. Talsverð vinna liggur í undirbúningi og yfirsetu á sýningum og vill stjórn ERL þakka öllum þeim sem komið hafa að sýningum félagsins gegnum árin.

Fræðsla

Mikið fræðslustarf hefur verið unnið af stjórnarmönnum ERL og enginn talið eftir sér símtöl og bréfaskriftir til hjálpar félagsmönnum og öðrum hænsnaeigendum í vanda. Félagsblaðið er stútfullt af góðum upplýsingum, vefurinn hefur nú bæst við og áfram verða félagarnir allir af vilja gerðir að leysa hvers annars vanda jafnt á netinu sem á símalínunni.

Stjórnin samþykkti árið 2007 að gangast fyrir gerð námsefnis sem gagnast gæti við námskeiðahald á mismunandi skólastigum. Jóhanna Harðardóttir og Júlíus Baldursson tóku að sér gerð námsefnisins og hefur þegar verið  haldið námskeið fyrir áhugafólk að Hvanneyri og verður vonandi framhald þar á.

 

Þessi vefur er enn í vinnslu og verður bætt við sögu félagsins eftir því sem tími vinnst til veturinn 2009-10

JH





 
Rammi
grasrótin
Vefhönnun: Hugsa sér !
Eigenda- og ræktendafélag Landnámshænsna | Hafa samband
Íslenska landnámshænan